Óskar Þórðarson, leiðbeinandi námskeiðsins, brosir með húfu og gleraugu, í dökkri dúnúlpu. Að baki eru fossar og snævi þakið landslag.

Fyrsta alvöru verkefnið þitt með Claude

Þú lærir verklag til að vinna með gervigreind, fimm skref sem virka á öll verkefni.

Skref fyrir skref. Engin forritun.

34.900 kr. · Næsta námskeið: 18. nóvember 2026

kl. 09:00–13:00 · Hámark 12 þátttakendur

Claude Pro eða Max þarf til þátttöku. Áskrift er ekki innifalin.

Hvenær
18. nóvember09:00–13:00
Hvar
ÚlfarsárdalurBorgarbókasafnið · Smiðjan
Hópurinn
12 þátttakendurVerkleg kennsla og aðstoð
Námskeiðsgjald
34.900 kr.Á mann

Þetta lærir þú

  • Að semja skýr fyrirmæli frá grunni með Claude og vista þau í möppu.

  • Að láta Claude lesa skjöl, flokka upplýsingar og búa til Excel-skjal.

  • Að yfirfara niðurstöður og biðja um breytingar.

  • Að geyma leiðbeiningar um vinnuaðferðina og nota hana við önnur verkefni.

Yfirsýn yfir tekjur og útgjöld.

Þú býrð til Excel-yfirlit og geymir aðferðina til að nota aftur heima. Við æfum með skálduðum gögnum.

Lærðu grunninn.
Prófaðu sjálf/ur.

Þú semur fyrirmælin með Claude, lætur hann vinna eftir þeim og athugar útkomuna. Síðustu 25 mínúturnar velurðu eigið verkefni.

  1. 01

    Grunnurinn

    • Claude, fyrirmæli og samhengi.
    • Örugg notkun og aðgangur að gögnum.
    • Skills, viðbætur (Plugins) og tengingar (Connectors).
  2. 02

    Sameiginlegt verkefni

    • Semja eigin fyrirmæli og geyma í möppu.
    • Lesa skálduð yfirlit og búa til Excel.
    • Athuga tölurnar og vista aðferðina í möppu.
  3. 03

    Þitt verkefni · 12:30–12:55

    • Leggja leiðbeiningarnar til hliðar og prófa sjálf/ur.
    • Velja verkefni sem nýtist þér.
    • Fá aðstoð þegar þú þarft.

Hvað viltu búa til? Matseðil og innkaupalista, vikudagskrá barna, einfalt stjórnborð eða ferðaplan. Þú þarft ekki að kunna að forrita.

Þú þarft ekki að kunna að forrita.

Þetta er fyrir byrjendur og fólk sem hefur helst notað gervigreind til að spjalla og fá hugmyndir. Við byrjum á grunninum og vinnum saman í litlum hópi.

Þú þarft að geta notað eigin fartölvu, opnað vafra og sótt og opnað skrár. Uppsetningarleiðbeiningar berast fyrir námskeiðið.

Komdu með fartölvuna.

  • Windows- eða Mac-fartölvu og hleðslutæki.
  • Uppsett Claude Desktop og virkan aðgang.
  • Virka Pro- eða Max-áskrift. Pro nægir til þátttöku. Áskrift greiðist sérstaklega til Anthropic.
  • Forrit eða vefþjónustu sem getur opnað Excel-skrár (.xlsx).

Vinnutölva? Kannaðu fyrst hvort þú megir setja upp forritið og nota Claude. Við hjálpum þér að undirbúa aðganginn fyrir námskeiðið.

Dagskráin

Stuttur inngangur, verkefni sem við vinnum saman og 25 mínútur í þitt eigið verkefni.

  1. Inngangur og kynning

    Claude, fyrirmæli, samhengi, skrár og örugg notkun.

  2. Markmið: búðu til eigin fyrirmæli

    Semja fyrirmæli með Claude og geyma þau í verkefnismöppu.

  3. Hlé

  4. Gögn: láttu Claude lesa skjölin

    Lesa skálduð banka- og kortayfirlit. Athuga að réttu gögnin séu með.

  5. Reglur: flokkaðu útgjöldin

    Ákveða flokkun og skýra það sem er óljóst.

  6. Hlé

  7. Excel, æfing: búðu til Excel-yfirlit

    Láta Claude búa til skýrt yfirlit yfir tekjur og útgjöld.

  8. Sannreyna: berðu niðurstöðuna saman við gögnin

    Bera tölurnar saman við gögnin og leiðrétta það sem þarf.

  9. Hlé

  10. Vista: geymdu aðferðina

    Búa til endurnýtanlega vinnuaðferð og prófa í nýju spjalli.

  11. Þitt eigið verkefni

    Leggja leiðbeiningarnar til hliðar og prófa sjálf/ur. Kennarinn aðstoðar.

  12. Lok

Óskar Þórðarson

OT AI · reynsla úr rekstri

„Ég kem úr rekstri og nota gervigreind daglega til að skipuleggja verkefni, vinna úr upplýsingum og byggja lausnir. Á námskeiðinu prófum við saman vinnulag sem ég nota sjálfur.“

Óskar er stofnandi OT AI og hefur yfir 20 ára reynslu af því að stofna fyrirtæki, stýra teymum og byggja upp rekstur. Kennslan byggir á hagnýtri notkun og eigin verkefnum.

Tryggðu þér sæti.

34.900kr. á mann

18. nóvember 2026 · kl. 09:00–13:00
Hámark 12 þátttakendur.
Húsið opnar kl. 08:45.

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Smiðjan | Fjölnota rými
Úlfarsbraut 128, 113 Reykjavík

Claude Pro eða Max þarf til þátttöku. Áskrift er ekki innifalin í námskeiðsgjaldinu.

Hafðu samband

Þú ferð heim með yfirlitið og aðferðina.

  • Fjögurra klukkustunda námskeið með hléum.
  • Skálduð æfingagögn og þín eigin fyrirmæli.
  • 25 mínútur í eigið verkefni, með aðstoð.
  • Excel-yfirlit og vinnuaðferð sem þú vistar í möppu og getur notað aftur.

Gætir þú átt rétt á námsstyrk?

Kannaðu rétt þinn hjá stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði áður en þú bókar.

Dæmi: Ef þú færð samþykktan 90% styrk og átt næg ónýtt réttindi færðu 31.410 kr. endurgreiddar. Kostnaður þinn eftir endurgreiðslu er þá 3.490 kr.

Þú greiðir fullt námskeiðsgjald, 34.900 kr., við kaup og sækir sérstaklega um styrk. Styrkhæfi námskeiðsins hefur ekki verið staðfest hjá sjóðunum. Endurgreiðslan ræðst af samþykki sjóðsins, styrkhlutfalli og réttindum þínum.

Reglur SVSReglur Starfsafls

Áður en þú bókar

Þarf ég að kunna á Claude?

Þú þarft ekki að kunna að forrita og engin fyrri reynsla af Claude er nauðsynleg. Þú þarft að kunna grunnatriði á eigin fartölvu. Við sendum leiðbeiningar um uppsetningu fyrir námskeiðið svo kennslutíminn nýtist í verkefnið.

Hvað eru Skills?

Skills eru endurnýtanlegar leiðbeiningar fyrir Claude, eins og uppskriftir. Á námskeiðinu sérðu hvernig Skills virka. Þína eigin vinnuaðferð vistar þú í möppu og getur notað hana aftur á öðrum verkefnum.

Þarf að tengja tölvupóst eða setja upp viðbætur?

Nei. Við kynnum viðbætur (Plugins) og tengingar (Connectors) í stuttu máli. Þú getur unnið öll verkefnin án þess að tengja tölvupóstinn þinn.

Þarf ég að kaupa fleiri áskriftir?

Við vinnum í Claude Desktop með Pro- eða Max-aðgangi. Áskriftin er ekki innifalin. Þú þarft ekki greidda ChatGPT-áskrift til að taka þátt. Þú þarft einnig að geta opnað Excel-skrá; leiðbeiningar um það fylgja undirbúningnum.

Sjá áskriftir hjá Claude

Þarf ég að koma með mín eigin bankagögn?

Nei, við notum skálduð æfingagögn. Claude vinnur úr gögnum í skýjaþjónustu, líka þegar upprunalega skjalið er í möppu á tölvunni þinni. Við förum yfir aðgangsheimildir, persónuverndarstillingar og hvernig má fjarlægja óþarfar persónuupplýsingar áður en gögnum er deilt.

Hvar er námskeiðið og hvernig er aðgengið?

Í Smiðjunni í Borgarbókasafninu Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 128, 113 Reykjavík. Í húsinu er þröskuldalaust aðgengi, lyfta og aðgengileg salerni. Almenn bílastæði eru við íþróttahús Fram og aðgengisstæði við aðalinngang.

Upplýsingar bókasafnsins um aðgengi

Hvað ef ég þarf að afbóka?

Miðakaup og endurgreiðslur fara eftir skilmálum Tix. Lögbundinn réttur kaupanda helst óskertur.

Getur fyrirtæki greitt fyrir þátttökuna?

Fyrirtæki geta keypt miða fyrir starfsfólk. Hafðu samband við oskar@otai.is ef þú þarft aðstoð vegna reikningsupplýsinga. Fyrirtæki geta einnig kannað rétt til fræðslustyrks hjá sínum sjóði.

Fyrirtækjareglur Starfsafls

OT AI ehf. · kt. 671113-1520
Námskeiðshaldari og reikningsútgefandi

oskar@otai.is

Sjálfstætt námskeið hjá OT AI.
Ekki haldið á vegum Anthropic.

Fyrsta alvöru verkefnið þitt með Claude · OT AI